Fotbolti.net
01.02.18 - 18:00
Magnús Már Einarsson

Jordan Tyler í Þrótt Vogum (Staðfest)

Marteinn, Ragnar og Örn skrifa undir

Marteinn Ægisson framkvæmdastjóri Þróttar og Jordan Tyler.

Marteinn Ægisson framkvæmdastjóri Þróttar og Jordan Tyler.

Canon

Mynd: Þróttur Vogum

Þróttur Vogum hefur fengið miðjumanninn Jordan Tyler til liðs við sig fyrir átökin í 2. deildinni í sumar.

Jordan þekkir til á Íslandi en hann spilaði með KF sumarið 2015 og Hetti árið 2016. Í fyrravetur skipti Jordan í Fram en spilaði ekkert með liðinu síðastliðið sumar.

Ragnar Þór Gunnarsson skrifaði einnig undir samning hjá Þrótti í vikunni en hann kom til félagsins frá Tindastóli fyrr í vetur.

„Ragnar Þór Gunnarsson (24 ára) kom til okkar í nóvember og í vikunni var skrifað undir tveggja ára samning við Ragnar. Það er gaman að segja frá því að Ragnar á ættir að rekja til Voga. Raggi eins og við köllum hann á skyldfólk hér í Vogum. Hér sleit faðir hans Gunnar barnsskónum,\" segir í fréttatilkynningu frá Þrótti.

„Þróttarar frá Vogum bjóða Ragnar Þór og Jordan velkomna í Þróttara fjölskylduna.\"

Þróttarar hafa einnig skrifað undir samninga við tvo leikmenn sem hjálpuðu liðinu upp úr 3. deildinni í fyrra.
„Það er okkur Þrótturum mikil ánægja að tilkynna að Marteinn Urbancic (25. ára) Örn R. Magnússon (28. ára) hafa samið við Þrótt V, til næstu tveggja ára. Marteinn kom til okkar á síðasta ári. Örn kom til Þróttar í fyrra og eiga þeir félagar það sameiginlegt að hafa skorað mikilvæg mörk í lokaleikjum síðasta árs sem fleytti liðinu deild ofar,\" segir í yfirlýsingu frá Þrótti.
Ragnar Þór Gunnarsson skrifaði undir tveggja ára samning.

Ragnar Þór Gunnarsson skrifaði undir tveggja ára samning.

Canon

Mynd: Þróttur Vogum

 Marteinn Urbancic og Örn R. Magnússon sömdu við Þrótt í vikunni.

Marteinn Urbancic og Örn R. Magnússon sömdu við Þrótt í vikunni.

Canon

Mynd: Þróttur Vogum

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.