01.02.18 - 08:30
Magnús Már Einarsson
Mangala til Everton á láni (Staðfest)

Nýr liðsfélagi Gylfa.

Mynd: Twitter

Nýr liðsfélagi Gylfa.

Mynd: Twitter
Everton hefur fengið varnarmanninn Eliaquim Mangala á láni frá Manchester City út tímabilið.
Félagaskiptin voru send inn í gærkvöldi áður en félagaskiptaglugginn lokaði og Mangala ætti að fá leikheimild fyrir helgi.
Mangala kom til Manchester City frá Porto á 32 milljónir punda árið 2014.
Eftir að City keypti Aymeric Laporte frá Athletic BIlbao í fyrradag á 57 milljónir punda fékk Mangala grænt ljós á að róa á önnur mið.

Hann er einn af þremur leikmönnum sem Sam Allardyce fékk til Everton í janúar en hinir eru Theo Walcott og Cenk Tosun. Walcott skoraði bæði mörk Everton í 2-1 sigri á Leicester í gærkvöldi.