01.02.18 - 08:54
Magnús Már Einarsson
Newcastle krækti í slóvakískan markvörð (Staðfest)

Dubravka í leik á KR-velli með Zilina árið 2011.

Mynd: Fótbolti.net - Torfi Jóhannsson

Newcastle náði að krækja í markvörðinn Martin Dubravka á láni frá Sparta Prag áður en félagaskiptaglugginn lokaði í gærkvöldi.
Dubravka er landsliðsmarkvörður Slóvakíu en hann stóð meðal annars vaktina í 2-1 tapi gegn Englandi í undankeppni HM 2018.
Á myndinni hér til hliðar er Dubravka í leik á KR-velli með Zilina árið 2011.
Dubravka á að berjast við Karl Darlow og Robert Elliott um markvarðarstöðuna hjá Newcastle.
Darlow skoraði mjög slysalegt sjálfsmark undir lokin í 1-1 jafnteflinu gegn Burnley í gær.

Newcastle náði einnig að krækja í framherjann Islam Slimani á láni frá Leicester rétt áður en félagaskiptaglugginn lokaði.
Newcastle er í 14. sæti í ensku úrvalsdeildinni en einungis eitt stig er niður í fallsæti.
Rafa Benítez, stjóri Newcastle, vildi fá meiri liðsstyrk í janúar en hann fékk ekki þann pening sem hann vildi til þess.
Newcastle goðsögnin Alan Shearer gagnrýndi Mike Ashley eiganda félagsins fyrir vikið eins og sjá má hér að neðan.

So over 11 seasons @NUFC net spend has been £4.5m a season. Throw in the TV money and ever present gate money....🤔
— Alan Shearer (@alanshearer) January 31, 2018
One hour left to spend some and give them a chance! Well done to the fans tonight for showing their love for the club. Shame others don't share it. #NUFC