Fotbolti.net
01.02.18 - 11:00
Magnús Már Einarsson

Söderlund til Rosenborg (Staðfest)

Alexander Söderlund.

Alexander Söderlund.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Andri Janusson

Rosenborg hefur keypt framherjann Alexander Söderlund aftur í sínar raðir frá St Etienne í Frakklandi.

Norski landsliðsmaðurinn skoraði 50 mörk í 94 leikjum með Rosenborg frá 2013 til 2015 áður en St Etienne keypti hann.
Hinn þrítugi Söderlund hefur ekki átt fast sæti í liði St Etienne í vetur og hann er nú kominn aftur til Rosenborg.

Hjá norsku meisturunum mun hann meðal annars berjast við Nicklas Bendtner og Matthías Vilhjálmsson um sæti í framlínunni.

Matthías er frá keppni vegna meiðsla á hné en hann vonast til að snúa aftur í liðið í sumar.

Matthías og Söderlund voru liðsfélagar sumarið 2009 hjá FH. Söderlund skoraði þrjú mörk í átján leikjum í Pepsi-deildinni með Fimleikafélaginu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.