Fotbolti.net
01.02.23 - 09:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Crouch og Terry hrifnir af Newcastle

Eddie Howe er að gera frábæra hluti með Newcastle

Eddie Howe er að gera frábæra hluti með Newcastle

Canon

Mynd: EPA

John Terry og Peter Crouch hrósuðu Newcastle í hástert í gær eftir að liðið tryggði sér sæti í úrslitum enska deildabikarsins í gær eftir sigur á Southampton.

Terry, fyrrum varnarmaður Chelsea, naut þess að horfa á liðið spila en Newcastle vann leikinn 2-1 þar sem Sean Longstaff skoraði bæði mörkin.

„Ég er að elska það sem Newcastle er að gera og hvernig þeir spila. Þeir líta alltaf fram á við og sem hlutlaus aðili er frábært að horfa á þetta," skrifaði Terry.

Það var mikil stemning á St. James' Park heimavelli liðsins í gær og Crouch, fyrrum sóknarmaður í úrvalsdeildinni fann það.

„St. James' Park er á pari við hvaða völl sem er í heiminum þegar hann er eins og hann er núna," skrifaði Crouch.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.