Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 01. febrúar 2023 22:53
Brynjar Ingi Erluson
Einkunnir Man Utd gegn Forest: Bruno bestur - Heaton fær 8
Bruno Fernandes
Bruno Fernandes
Mynd: EPA
Bruno Fernandes var valinn maður leiksins er Manchester United vann Nottingham Forest, 2-0, í undanúrslitum enska deildabikarsins í kvöld. Manchester Evening News gefur leikmönnum einkunnir að þessu sinni.

Fernandes átti mjög góðan leik í liði United á miðjunni en Sky valdi hann besta mann leiksins. Hann fær 7 frá MEN.

Casemiro og Tom Heaton fá 8. Heaton gerði vel þegar það reyndi á hann.

Jadon Sancho átti góða innkomu af bekknum í fyrsta leik sínum síðan í október og Marcus Rashford sömuleiðis sem lagði upp bæði mörkin.

Man Utd: Heaton (8), Wan-Bissaka (6), Varane (7), Martínez (7), Shaw (6), Casemiro (8), Fred (7), Antony (6), Fernandes (7), Garnacho (6), Weghorst (5).
Varamenn: Martial (7), Sancho (7), Rashford (7), Harry Maguire (6), Victor Lindelöf (6).
Athugasemdir
banner
banner
banner