Barcelona undirbýr tilboð í Lisandro Martinez - Curtis Jones orðaður við Inter - Camavinga orðaður við Arsenal og Liverpool
   sun 01. febrúar 2026 07:30
Brynjar Ingi Erluson
Belgískt undrabarn á leið til Barcelona
Jesse Bisiwu er efnilegur vængmaður
Jesse Bisiwu er efnilegur vængmaður
Mynd: Club Brugge
Spánarmeistarar Barcelona eru að landa belgíska vængmanninum Jesse Bisiwu frá Club Brugge en þetta segir ítalski blaðamaðurinn Matteo Moretto og spænski miðillinn Marca.

Bisiwu er 18 ára gamall og spilar vanalega á vinstri vængnum en hann getur einnig spilað hægra megin á vellinum.

Á þessu tímabili hefur hann spilað með varaliði Brugge í B-deildinni í Belgíu og þá komið að þremur mörkum í Evrópukeppni unglingaliða.

Moretto og Marca segja frá því að Barcelona hafi fylgst með honum um nokkurt skeið og sé nú reiðubúið að kaupa hann frá Brugge.

Deco, yfirmaður fótboltamála hjá Barcelona, hefur ferðast nokkrum sinnum til Belgíu til þess að koma skiptunum yfir línuna og ferðalögin greinilega þess virði því Bisiwu er nú sagður hafa samþykkt að ganga í raðir Barcelona og félögin að ganga frá samkomulagi.

Bisiwu mun ganga formlega í raðir Börsunga í sumar og líklega taka undirbúningstímabilið með aðalliðinu.

Hann á 24 landsleiki að baki með yngri landsliðum Belgíu og skorað tvö mörk.
Athugasemdir
banner
banner
banner