Fotbolti.net
01.04.19 - 11:23
Elvar Geir Magnússon

McClaren rekinn frá QPR (Staðfest)

Atvinnulaus.

Atvinnulaus.

Canon

Mynd: Getty Images

Queens Park Rangers er búið að reka knattspyrnustjórann Steve McClaren en liðið er dottið niður í 18. sæti Championship-deildarinnar.

McClaren tók við stjórnartaumunum á Loftus Road í maí í fyrra en hefur aðeins fagnað einum sigri síðan um jólin,

QPR er átta stigum fyrir ofan fallsæti en á laugardag tapaði liðið 1-2 á heimavelli gegn Bolton sem er í fallsæti.
„Það er aldrei auðvelt að taka ákvarðanir sem þessar, sérstaklega þegar jafn mikill fagmaður og Steve á í hlut," segir framkvæmdastjóri QPR, Lee Hoos.

„Hann hefur lagt sig allan fram í starfi. Við erum á þeim stað að við erum að vinna í að ná fjárhagslegum stöðugleika. Með því koma áskoranir eins og að reyna að lækka launakostnað."

McClaren hefur á stjóratíð sinni meðal annars stýrt enska landsliðinu, Middlesbrough, Newcastle og Derby.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal10+1027
2Brighton10+1922
3Man City10+821
4Liverpool10+418
5Chelsea10+316
6Everton10+216
7Bournemouth10+215
8Brentford10+514
9Leeds10+214
10Aston Villa10-313
11Tottenham10-112
12Newcastle10-312
13Hull City10011
14Ipswich Town10-511
15Fulham10-210
16Nott. Forest10-49
17Coventry10-99
18Man Utd10-58
19Sunderland10-98
20Crystal Palace10-147
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.