Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 01. apríl 2020 09:20
Magnús Már Einarsson
ÍA skerðir launagreiðslur umtalsvert
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
ÍA hefur ákveðið að skerða launagreiðslur til þjálfara og leikmanna umtalsvert en Geir Þorsteinsson, nýr framkvæmdastjóri Skagamanna, greinir frá þessu í pistli hjá Skessuhorni.

Vegna kórónuveirunnar er rekstrarumhverfið erfiðara hjá félögum þessa dagana en KR og KA hafa einnig tilkynnt um launalækkanir að undanförnu.

Geir segir að Skagamenn vonist til þess að skilningur á sérstöðu íþrótta verði til þess að úrræði ríkisvaldsins um minnkað starfshlutfall nýtist þjálfurum og leikmönnum liðsins.

„Knattspyrnufélag ÍA hefur orðið að bregðast við nýju aðstæðum með áður óþekktum hætti til að vernda starfsemi félagsins. Stjórnin félagsins ákvað, sem fyrsta skref, að beita neyðarúrræðum strax um þessi mánaðamót og skerða launagreiðslur til þjálfara og leikmanna umtalsvert," segir Geir í pistli sínum.

„Ráðstöfunin er sársaukafull en nýtur skilnings þessara aðila sem er gott dæmi um að okkar fólk er með stórt ÍA hjarta. Mikilvægt er að upplýsa bæjarbúa og stuðningsmenn um þessar ráðstafanir félagsins. Við berum þá von í brjósti að skilningur á sérstöðu íþrótta verði til þess að úrræði ríkisvaldsins um minnkað starfshlutfall nýtist þjálfurum og leikmönnum okkar."

„Það er mikilvægt að stjórnvöld, bæði ríkisvaldið og bæjaryfirvöld, sýni því skilning hve mikilvægu hlutverki þjálfarar og leikmenn gegna í samfélagi okkar við uppbyggingu íþróttar fyrir líkamlegt og andlegt heilbrigði ungs fólks. Orðstír knattspyrnunnar á Akranesi hefur farið víða og aukið hróður bæjarfélagsins langt út fyrir landsteinana. Stuðningur bæjarfélagsins við starf knattspyrnufélagsins er nú mikilvægari en nokkru sinni fyrr."


Smelltu hér til að lesa pistil Geirs hjá Skessuhorni

Sjá einnig:
Formaður KR: Óhjákvæmilegt að leikmenn taki á sig launalækkun
KA hefur endursamið við sína menn - Gildir í átta mánuði
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner