Íslands- og bikarmeistarar Breiðabliks hafa samið við bandaríska markvörðinn Taylor Kane en hún kemur frá Minnesota Aurora í heimalandinu.
Blikar notuðu fjóra markmenn á síðustu leiktíð. Katherine Devine lék flesta leiki í markinu og þá spilaði Telma Ívarsdóttir sjö leiki áður en hún hélt til Rangers í Skotlandi. Kyla Elizabeth Burns lék einn leik en yfirgaf Blika um áramótin.
Herdís Halla Guðbjartsdóttir, sem spilaði tvo leiki í Bestu deildinni á síðasta ári, hefur staðið í markinu á undirbúningstímabilinu en Blikar hafa nú sótt markvörð sem mun veita henni samkeppni í sumar.
Taylor Kane er mætt í markið en hún er 23 ára gömul og spilaði síðast með Minnesota í USL-deildinni þar sem hún hefur verið með bestu markvörðum deildarinnar.
Taylor hefur samið um að leika með Blikum á komandi tímabili en hún er mætt til landsins og hefur þegar hafið æfingar með liðinu.
Breiðablik mun mæta FH í meistarar meistaranna á morgun og spilar síðan fyrsta deildarleikinn gegn Þrótti þann 24. apríl á Kópavogsvelli.



