Fotbolti.net
01.04.26 - 22:13
Brynjar Ingi Erluson

Isak gæti verið með um helgina - Leoni snýr aftur í lok mánaðar

Alexander Isak er að snúa aftur

Alexander Isak er að snúa aftur

Canon

Mynd: EPA

Sænski framherjinn Alexander Isak er að snúa aftur með Liverpool eftir að hafa verið frá síðan í desember en hann gæti verið á bekknum hjá liðinu er það heimsækir Manchester City í 8-liða úrslitum enska bikarsins á laugardag. Þetta segir Paul Joyce hjá Times.
Isak ökklabrotnaði í leik gegn Tottenham í desember, stuttu eftir að hafa skorað annað úrvalsdeildarmark sitt með þeim rauðu.

Hann hefur ekkert verið með síðan en hann hefur hægt og rólega verið að koma sér aftur á völlinn og staðfesti Arne Slot, stjóri félagsins, að hann myndi taka sína fyrstu æfingu með liðinu á morgun.

Blaðamaðurinn Paul Joyce, sem er talinn sá allra virtasti þegar kemur að fréttum um Liverpool, segir góðar líkur á því að Isak verði á bekknum gegn Man City á laugardag.

„Ég held að Alex sé á mjög góðum stað því Svíar voru að komast á HM og á morgun er hann að fara æfa með hópnum í fyrsta sinn.

„Auðvitað verður þetta fyrsta æfingin eftir að hafa verið 3-4 mánuði frá, en það er gott að fá hann aftur því við vitum allir hvern við keyptum og hversu ótrúlega góður framherji hann er.“

„Þannig að fá hann í lið sem vanalega skapar sér mörg færi, þó svo það gerist kannski ekki strax hjá honum, þá er samt ótrúlega hjálplegt að fá hann inn í þetta fyrir síðustu tvo mánuði tímabilsins,“
sagði Slot.

Þetta eru ekki einu góðu fréttirnar úr herbúðum Liverpool, en ítalski miðvörðurinn Giovanni Leoni er að snúa aftur eftir að hafa slitið krossband snemma á tímabilinu.

Hann sleit krossband í leik Liverpool gegn Southampton í deildabikarnum í september. Þessi 19 ára gamli Ítali heillaði marga stuðningsmenn Liverpool í sínum fyrsta leik með félaginu, en síðan kom þetta óvænta högg.

Leoni er að ljúka endurhæfingarferli sínu og er búist við honum aftur á völlinn í lok apríl.
Giovanni Leoni gæti byrjað að æfa með liðinu í lok apríl

Giovanni Leoni gæti byrjað að æfa með liðinu í lok apríl

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.