Liverpool vill Conceicao - City að vinna kapphlaupið um Anderson - Ýmsir orðaðir við Man Utd
   mið 01. apríl 2026 19:21
Brynjar Ingi Erluson
Kalla eftir höfði forsetans - „Held að það sé mesta áhyggjuefnið“
Gabriele Gravina, forseti ítalska fótboltasambandsins
Gabriele Gravina, forseti ítalska fótboltasambandsins
Mynd: EPA
Fabio Capello vill Gravina burt
Fabio Capello vill Gravina burt
Mynd: EPA
Ítalía mun missa af þriðja heimsmeistaramótinu í röð eftir að hafa tapað fyrir Bosníu í umspili á dögunum en stór nöfn í ítalska boltanum og íþróttamálaráðherra Ítalíu kalla eftir því að Gabriele Gravina, forseti fótboltasambandsins, segi af sér.

Ítalía varð heimsmeistari í fjórða sinn í sögunni árið 2006 en síðan þá hefur orðið mikið hrun.

Árið 2010 hafnaði liðið í neðsta sæti riðilsins á HM og fjórum árum síðar mistókst liðinu aftur að komast í útsláttarkeppnina. Síðan þá hefur liðinu ekki tekist að komast á mótið í þrjú skipti.

Gravina tók við sem forseti ítalska sambandsins árið 2018 og hafa því tvö af þessum þremur skiptum komið undir hans stjórn og verklagi.

Andrea Abodi, yfirmaður íþróttamála á Ítalíu, kallar eftir breytingum og að það þurfi að byrja að endurnýja stjórnina sem hann telur vera rót vandans.

Claudio Lotito, forseti Lazio, hefur þá einnig kallað eftir höfði Gravina og segist fyrrum þjálfarinn Fabio Capello ekki skilja af hverju forsetinn sé ekki búinn að skila inn uppsagnarbréfi.

„Það segir enginn upp störfum. Ég held að það sé mesta áhyggjuefnið. Fyrsta manneskjan sem á að taka ábyrgð er forseti sambandsins ásamt allri stjórninni,“ sagði Capello.

Gravina sagði eftir leikinn í gær að hann væri ekki að hugsa um að segja af sér.

„Þeir vilja að ég segi upp störfum en ég er orðinn vanur þessu. Ég bað Gattuso og Buffon um að vera áfram. Ég vil hrósa liðinu enda sé ég bætingu á liðinu á síðustu mánuðum, en synd að stuðningsmennirnir muni ekki fá að njóta þess sem við erum að reyna að skapa,“ sagði Gravina í gær.


Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Slapp
banner
banner