Það vakti athygli í vítaspyrnukeppni Bosníu og Hersegóvínu og Ítalíu í gær þegar markvörðum liðanna lenti saman. Nikola Vasilj var eðlilega ekki sáttur með Ítalann Gianluigi Donnarumma sem reyndi að rífa heimavinnu Bosníumannsins í tætlur.
Vasilj var með heimavinnu varðandi vítaskyttur ítalska liðsins og komst Donnarumma í pappírana og myndaðist hiti við vítateiginn. Markmannshanskarnir komu í veg fyrir að Donnarumma tækist að rífa svindlmiðann alveg í sundur.

Goal.com hefur eftirfarandi eftir bosníska miðlinum SportsSport sem er stærsti íþróttamiðill landsins.
„Gaurinn er skömm fyrir fótboltann: Fordæmalaus og ósanngjörn hegðun Donnarumma í vítaspyrnukeppninni," segir í grein miðilsins.
Það eru ekki allir sammála því að Donnarumma hafi gert eitthvað rangt, sumir eru á því að hann hafi átt rétt á því að koma í veg fyrir að Vasilj gæti skoðað glósurnar.