Liverpool vill Conceicao - City að vinna kapphlaupið um Anderson - Ýmsir orðaðir við Man Utd
   mið 01. apríl 2026 11:45
Elvar Geir Magnússon
Toronto
Liverpool vill Conceicao - Ýmsir orðaðir við Man Utd
Powerade
Francisco Conceicao.
Francisco Conceicao.
Mynd: EPA
Anderson til Manchester?
Anderson til Manchester?
Mynd: EPA
Livramento.
Livramento.
Mynd: EPA
Liverpool vill fá leikmann Juventus til að fylla skarð Salah, Manchester City er á undan grönnum sínum í kapphlaupi um leikmann Forest og það er ýmislegt í gangi í leikmannamálum Man Utd. Þetta og fleira í slúðrinu.

Liverpool vill fá portúgalska kantmanninn Francisco Conceicao (23) frá Juventus í stað Mohamed Salah (33) þegar samningur egypska framherjans rennur út eftir tímabilið. (Gazzetta)

Vonir Manchester United um að fá ítalska miðjumanninn Sandro Tonali (25) í sumar hafa aukist en Newcastle er opið fyrir því að hlusta á rétt tilboð í bestu leikmenn sína. (Sun)

Manchester City er á undan Manchester United í kapphlaupinu um Elliot Anderson (23), miðjumann Nottingham Forest. City mun reyna að kaupa enska landsliðsmanninn fyrir HM í sumar. (Mail)

Manchester United er meðal félaga sem hafa áhuga á brasilíska miðjumanninum Joao Gomes (25) hjá Wolves. Hann gæti verið fáanlegur fyrir um 39 milljónir punda ef Úlfarnir falla. (Caught Offside)

Manchester United er líklegast til að fá enska varnarmanninn Charlie Cresswell (23) frá Toulouse í sumar. (TeamTalk)

Bayern München hefur ekki áhuga á að kaupa enska miðjumanninn Phil Foden (25) frá Manchester City þar sem Þýskalandsmeistararnir hafa ekki fjármagn til að fá hann. (Bild)

Hollenski sóknarmaðurinn Joshua Zirkzee (24) vill vera áfram hjá Manchester United á næsta tímabili því hann telur að Michael Carrick muni gefa sér tækifæri, ef hann heldur áfram með stjórnartaumana. (Mail)

Arsenal og Manchester City eru líklegust í baráttunni um enska varnarmanninn Tino Livramento (23) ef hann gerir ekki nýjan samning við Newcastle. (Football Insider)

Spænska félagið Villareal vill fá senegalska kantmanninn Ismaila Sarr (28) frá Crystal Palace í sumar. (Fichajes)

Nico Schlotterbeck (26) segist ekki vera nálægt því að gera nýjan samning við Borussia Dortmund. Real Madrid hefur áhuga á þýska varnarmanninum. (AS)

Enski framherjinn Marcus Rashford (28), sem er á láni hjá Barcelona, er einn af fimm leikmönnum sem munu líklega yfirgefa Manchester United í sumar. United vonast til að fá yfir 100 milljónir punda í leikmannasölum. (Sky Sports)

Barcelona horfir til norska kantmannsins Andreas Schjelderup (21) hjá Benfica sem varakosts ef félagið kaupir ekki Rashford frá Manchester United. (Record)

Franski sóknarmaðurinn Hugo Ekitike (23) hefur klifrað hratt upp óskalistann hjá Real Madrid eftir flott fyrsta tímabil hjá Liverpool. (TeamTalk)
Slapp
banner