Bayern 2 - 1 Manchester Utd (5-3, samanlagt)
0-1 Melvine Malard ('11 )
1-1 Glódís Perla Viggósdóttir ('81 )
2-1 Linda Dallmann ('84 )
0-1 Melvine Malard ('11 )
1-1 Glódís Perla Viggósdóttir ('81 )
2-1 Linda Dallmann ('84 )
Glódís Perla Viggósdóttir var ein af hetjum Bayern München sem vann Manchester United, 2-1, og komst í undanúrslit Meistaradeildar Evrópu í kvöld.
Bæjarar unnu fyrri leikinn 3-2 í Manchester en það voru United-konur sem byrjuðu betur í kvöld og jöfnuðu einvígið á 11. mínútu er Melvine Malard skoraði af stuttu færi.
Malard fékk boltann inn fyrir og réði Vanessa Gilles ekkert við Malard, sem komst framhjá markverðinum og setti boltann í netið.
United-liðið var líklegra eftir markið og átti nokkrar tilraunir, meðal annars fyrirgjöf sem hafnaði í þverslá. Bæjarar stóðu af sér pressuna og náðu síðan að ógna aðeins í síðari hluta fyrri hálfleiksins.
Bayern var með öll völd á síðari hálfleiknum og verðskuldaði að koamst yfir á 81. mínútu er Glódís Perla stangaði hornspyrnu í netið. Mikilvægt mark hjá Bayern enda hefði það dugað til að koma þeim áfram en Linda Dallmann sá um að gulltryggja sætið í undanúrslitin með marki þremur mínútum síðar.
Samanlagður 5-3 sigur hjá Bayern sem er komið áfram og mætir þar annað hvort Barcelona eða Real Madrid. Barcelona er 6-2 yfir í einvíginu.
Þetta er í þriðja sinn í sögunni sem Bayern fer í undanúrslit, en það vonast nú til að skrifa sig í sögubækurnar með því að komast í úrslit í fyrsta sinn í sögu kvennaliðsins.


