Fotbolti.net
01.05.18 - 07:00
Ívan Guðjón Baldursson

Arnar Sveinn lánaður til KH (Staðfest)

Arnar varð Íslandsmeistari með Val síðasta sumar.

Arnar varð Íslandsmeistari með Val síðasta sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Arnar Sveinn Geirsson lék nokkuð stórt hlutverk í meistaraliði Vals á síðasta tímabili.

Arnar meiddist í janúar á þessu ári og á enn eftir að ná fullum bata. Hann hefur því verið lánaður til KH í 3. deildinni.
Það verður áhugavert að fylgjast með gengi Arnars hjá KH í sumar þar sem ljóst er að hann á ekki heima í þriðju deildinni.

Hann á hátt í 100 Pepsi-deildar leiki að baki og er á besta aldri, fæddur 1991.

Arnar Sveinn Geirsson hefur verið lánaður til KH frá Íslandsmeisturum Vals. Arnar Sveinn lék 23 leiki með Val í fyrra. pic.twitter.com/wzEOjjbUwQ

— KH (@KHlidarendi) April 30, 2018


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.