01.05.18 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Bjarni Smári og Hlynur Kárason í Hamar (Staðfest)

Mynd: Hamar

Mynd: Hamar
Hamar hefur verið að semja við aragrúa af nýjum leikmönnum fyrir Íslandsmótið og voru tveir að bætast við á dögunum.
Þeir fá mikinn liðsstyrk í Bjarna Smára Gíslasyni sem kemur beint til liðsins eftir að hafa spilað ellefu leiki fyrir Tindastól í 2. deildinni í fyrra.

Hlynur Kárason mun þá bætast í markmannshóp Hvergerðinga og kemur hann beint frá nágrönnunum á Stokkseyri.
Hamar leikur í A-riðli 4. deildar í sumar og stefnir beint upp í þriðju deild. Hvergerðingar hafa mikla trú á þjálfara sínum Dusan Ivkovic sem er ekki smeykur við að gera breytingar og hrista upp í hópnum.