01.05.18 - 10:30
Ívan Guðjón Baldursson
Graeme Murty hættur hjá Rangers (Staðfest)


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images
Graeme Murty er hættur sem knattspyrnustjóri hjá Rangers eftir 5-0 tap gegn Celtic í erkifjendaslagnum.
Celtic tryggði sér sjöunda Skotlandsmeistaratitilinn í röð með sigrinum og veikti vonir Rangers um Evrópudeildarsæti.
Celtic tryggði sér sjöunda Skotlandsmeistaratitilinn í röð með sigrinum og veikti vonir Rangers um Evrópudeildarsæti.
Það eru þrjár umferðir eftir af tímabilinu og er Rangers í harðri baráttu við Hibernian og Aberdeen, þar sem Kári Árnason hefur verið að gera góða hluti, um Evrópusæti.
Jimmy Nicholl og Jonatan Johansson munu stýra liðinu út tímabilið. Steven Gerrard er talinn líklegastur til að taka við stjórnartaumunum.
Jimmy Nicholl og Jonatan Johansson munu stýra liðinu út tímabilið. Steven Gerrard er talinn líklegastur til að taka við stjórnartaumunum.
