01.06.17 - 12:06
Magnús Már Einarsson
Bjarni Guðjóns ráðinn aðstoðarþjálfari Víkings R. (Staðfest)

Logi Ólafsson og Bjarni Guðjónsson.

Mynd: Víkingur

Logi Ólafsson og Bjarni Guðjónsson.

Mynd: Víkingur
Bjarni Guðjónsson hefur verið ráðinn aðstoðarþjálfari Víkings R. en Heimir Gunnlaugsson varaformaður knattspyrnudeildar staðfesti þetta við Fótbolta.net nú rétt í þessu.
Bjarni tekur við starfinu af Dragan Kazic sem er á förum til Svartfjallalands. Dragan er að taka við svartfellsku meisturunum í Budućnost.
„Dragan fékk tilboð um að taka við einu af bestu liðunum í heimalandi sínu og við vildum ekki standa í vegi fyrir því,\" sagði Heimir við Fótbolta.net rétt í þessu.
Logi Ólafsson tók við Víkingi í síðustu viku eftir að Milos Milojevic hætti hjá félaginu. Bjarni mun nú vera aðstoðarmaður Loga í Víkinni.
Bjarni þjálfaði Fram árið 2014 áður en hann tók við KR. Bjarni var rekinn frá KR í fyrrasumar en hann hefur ekki starfað við þjálfun síðan þá.
Í sumar hefur Bjarni starfað hjá Stöð 2 Sport í þættinum Teigurinn á föstudögum en hann mun nú láta af störfum þar.
Hinn 38 ára gamli Bjarni átti farsælan feril sem leikmaður en hann lagði skóna á hilluna haustið 2013. Í vor fékk Bjarni leikheimild með KV en hann hefur ekkert leikið með liðinu í 2. deildinni í sumar.

Missum frábæran mann. Tók 4 þætti að selja @Bjarnigudjons Gangi þér vel í nýjum störfum. Fengum tilboð sem við gátum ekki hafnað #teigurinn pic.twitter.com/BQHtOoi3Pf
— Teigurinn (@teigurinn) June 1, 2017
Last training for #vikingurfc Meistari Dragan #fotboltinet #pepsi365 pic.twitter.com/asBxQu1M6u
— Haraldur Haraldsson (@HarHaralds) June 1, 2017