Fotbolti.net
01.06.17 - 19:00
Bjarni Þórarinn Hallfreðsson

Falcao framlengir við Frakklandsmeistarana (Staðfest)

Falcao verður áfram hjá Monaco

Falcao verður áfram hjá Monaco

Canon

Mynd: Getty Images

Frönsku meistararnir Monaco hafa framlengt samning sinn við stjörnuframherjann Falcao. Nýi samningurinn gildir til ársins 2020.

Eftir mögur ár í Englandi með Manchester United og Chelsea sýndi Falcao hvers megnugur hann er á þessu tímabili með að skora 21 mark í 29 leikjum.

Þá skoraði þessi Kólumbíski framherji einnig sjö mörk í Meistaradeild Evrópu en Monaco komst í undanúrslit eftir að hafa slegið út Manchester City og Dortmund.

<i>„Ég er ánægður með að halda ævintýri mínu áfram hjá Monaco,\"</i> sagði Falcao eftir yfirlýsinguna.

Líklegt þykir að Monaco muni nú snúa sér að Kylian Mbappe og halda honum en Bernardo Silva er nú þegar farinn frá félaginu til Manchester City.

L'AS Monaco est heureux d'annoncer la prolongation du contrat de @FALCAO jusqu'en 2020 ! 🙌 #Falcao2020 pic.twitter.com/NLfWjtfC2B

— CHAMPIONS 🏆 (@AS_Monaco) June 1, 2017

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.