Fotbolti.net
01.06.17 - 17:19
Elvar Geir Magnússon

Yaya Toure áfram hjá Man City (Staðfest)

Toure verður áfram.

Toure verður áfram.

Canon

Mynd: Getty Images

Yaya Toure, miðjumaður Manchester City, hefur skrifað undir nýjan eins árs samning við enska úrvalsdeildarfélagið.

Þessi 34 ára leikmaður hefur leikið 299 leiki fyrir City og skorað 81 mark síðan hann kom frá Barcelona 2010.
Á liðnu tímabili var Toure skilinn eftir fyrir utan Meistaradeildarhóp City og knattspyrnustjórinn Pep Guardiola lenti í deilum við umboðsmann hans, Dimitri Seluk.

„Ég er í skýjunum. Ég sagði við sjálfan mig að ferðalagi mínu hjá City væri ekki lokið,\" segir Toure.

Toure baðst afsökunar fyrir hönd Seluk í byrjun nóvember og var þá valinn í leik gegn Crystal Palace þar sem hann skoraði tvö mörk, nýkominn úr tveggja mánaða útlegð.

Toure var svo mikilvægur hlekkur í liðinu út tímabilið, spilaði samtals 31 leik þegar City hafnaði í þriðja sæti deildarinnar.

Yfirmaður fótboltamála hjá Manchester City, Txiki Begiristain, hefur þetta að segja: „Yaha hefur þjónað Manchester City stórkostlega og verður áfram mikilvægur hlekkur í leikmannahópi Pep Guardiola. Hann er einn af okkar reyndustu og vinsælustu leikmönnum og við gætum ekki verið ánægðari með að hann verður áfram hjá okkur. Við vonum að næsta tímabil verði mjög spennandi.\"

Miklar breytingar verða á leikmannahópi City í sumar en félagið er þegar farið að hreinsa til.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.