01.06.18 - 07:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Berizzo tekinn við Athletic Bilbao (Staðfest)

Eduardo Berizzo.

Mynd: Getty Images

Eduardo Berizzo.

Mynd: Getty Images
Eduardo Berizzo hefur verið ráðinn nýr stjóri Athletic Bilbao. Hann er búinn að skrifa undir eins árs samning við félagið.
Berizzo tekur við starfinu af Jose Angel Ziganda, sem entist bara í eina leiktíð hjá félaginu. Ziganda tók við Bilbao af Ernesto Valverde en árangurinn á hans fyrsta og eina tímabili olli miklum vonbrigðum. Bilbao endaði í 16. sæti í spænsku úrvalsdeildinni.

Argentínumaðurinn Berizzo er nýi maðurinn í brúnni í Baskalandi. Hann var síðast stjóri Sevilla.
Berizzo lenti í miklum veikindum á meðan hann var stjóri Sevilla á síðustu leiktíð, hann var með krabbamein í blöðruháskirtli. Hann fór í aðgerð vegna þess og er líðan hans sögð góð núna.
Berizzo er 48 ára að aldri.