Fotbolti.net
01.06.18 - 14:47
Elvar Geir Magnússon

Grétar Snær verður löglegur með HB 15. júní (Staðfest)

Grétar Snær verður löglegur með HB 15. júní (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Miðjumaðurinn Grétar Snær Gunnarsson hefur verið lánaður frá FH til færeyska toppliðsins HB í Þórshófn.

Grétar verður löglegur með HB þann 15. júní þegar glugginn í Færeyjum opnar.

Þjálfari HB er Heimir Guðjónsson en hann hefur gert góða hluti með liðið, það er í efsta sæti deildarinnar og er komið með annan fótinn í bikarúrslit.
Grét­ar er 21 árs gam­all og hef­ur spilað með öll­um yngri landsliðunum. Á síðasta tímabili lék hann með HK á lánssamningi frá FH.

Hann verður annar íslenski leikmaðurinn í herbúðum HB en þar er fyrir Brynjar Hlöðversson, fyrrum miðjumaður Leiknis.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.