Fotbolti.net
01.06.19 - 20:03
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Hljóp inn á í úrslitaleiknum til að auglýsa klámsíðu

Hljóp inn á í úrslitaleiknum til að auglýsa klámsíðu
Canon

Mynd: Getty Images

Það er kominn hálfleikur í úrslitaleik Meistaradeildarinnar. Staðan er 1-0 fyrir Liverpool gegn Tottenham.

Mohamed Salah skoraði eina mark leiksins úr vítaspyrnu eftir aðeins tvær mínútur.

Sjá einnig:
Sjáðu markið og vítaspyrnudóminn: Salah skoraði
Það þurfti að stöðva leikinn um stutta stund í fyrri hálfleik þegar léttklædd kona hljóp inn á völlinn. Talið er að konan sé Kinsey Wolanski, kærasta Vitaly Zdorovetskiy.

Vitaly er/var vinsæll á Youtube. Hann komst í fréttirnar fyrir það að hlaupa inn á völlinn þegar Argentína og Þýskaland mættust í úrslitaleik HM 2014.

Wolanski var klædd í sundbol sem á stóð „Vitaly Uncensored". Það er klámsíða sem Vitaly var að koma á laggirnar.

Allt saman bara mjög eðlilegt.


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.