Liverpool er komið yfir í úrslitaleik Meistaradeildarinnar gegn Tottenham í Madríd.
Mohamed Salah skoraði eftir aðeins rétt tæpar tvær mínútur úr vítaspyrnu. Vítaspyrna var dæmd eftir að Moussa Sissoko, miðjumaður Tottenham, fékk boltann í höndina. Dómarinn mat það að minnsta kosti þannig.
Smelltu hér til að sjá markið og vítaspyrnudóminn.
Var þetta réttur dómur? Hann er vægast sagt umdeildur á Twitter. Harry Maguire, varnarmaður Leicester, er á meðal þeirra sem tjá sig um hann. Hann hefði ekki verið sáttur ef hann hefði fengið þetta víti dæmt á sig.
Not a penalty for me #ChampionsLeagueFinal2019 ⚽️
— Harry Maguire (@HarryMaguire93) June 1, 2019
Athugasemdir