01.07.17 - 13:19
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Caballero semur við Chelsea (Staðfest)

Caballero semur við Englandsmeistaranna.

Mynd: Getty Images

Englandsmeistarar Chelsea hafa fundið nýjan varamarkvörð. Þeir eru búnir að semja við Argentínumanninn Willy Caballero.
Caballero fékk ekki nýjan samning hjá Manchester City, en samningur hans þar rann út í júní.
Hinn 35 ára gamli Caballero kom til Man City frá Malaga árið 2014 og spilaði 26 leiki undir stjórn Pep Guardiola á síðasta tímabili.

„Ég er mjög ánægður með að vera í ganga í raðir Englandsmeistaranna,\" sagði Caballero. „Ég hlakka til að hitta strákana og hjálpa liðinu að ná meiri árangri.\"
Caballero kemur til með að standa vaktina þegar Thibaut Courtois er hvíldur eða getur ekki spilað. Caballero kemur í stað Asmir Begovic, sem var seldur til Bournemouth fyrr í sumar.

Welcome to Chelsea, Willy Caballero! https://t.co/GGFudYqdu3
— Chelsea FC (@ChelseaFC) July 1, 2017