Fotbolti.net
01.07.17 - 11:49
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Jan Bednarek til Southampton (Staðfest)

Orðinn dýrlingur.

Orðinn dýrlingur.

Canon

Mynd: Getty Images

Southampton hefur gengið frá kaupum á miðverðinum Jan Bednarek, en hann kemur frá pólska liðinu Lech Poznan.

Hann skrifar undir fimm ára samning við dýrlingana.

Bednarek var að spila á Evrópumóti U-21 árs landsliða með pólska landsliðinu, en hann kemur til Southampton á næstu dögum.
Hinn 21 árs gamli Bednarek hjálpaði Lech að enda í þriðja sæti pólsku úrvalsdeildarinnar á síðasta tímabili.

Hann er mjög ánægður með að vera kominn til Southampton.

„Núna eru draumar mínir að rætast,\" sagði Bednarek við heimasíðu Southampton. „Ég tel að þetta sé gott skref fyrir mig, vegna þess að ég hef heyrt að Southampton sé gott félag fyrir unga leikmenn. Ég get bætt mig hérna,\" sagði hann.

Hann er fyrsti leikmaðurinn sem Mauricio Pellegrino, nýr stjóri Southampton, fær til félagsins.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.