01.07.17 - 10:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Kiko Femenia í Watford (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Watford, sem leikur í ensku úrvalsdeildinni, hefur gengið frá kaupum á hægri bakverðinum Kiko Femenia.
Hinn 26 ára gamli Femenia kemur til Watford frá Deportivo Alaves. Hann skrifaði undir fjögurra ára samnig við Watford.
Femenia spilaði 77 leiki á tveimur tímabilum hjá Alaves, en þar af kom 31 í spænsku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili.

Hann skoraði fimm mörk og hjálpaði Alaves að komast í spænsku úrvalsdeildina fyrir tveimur árum síðan.
Femenia hóf feril sinn sem hægri kantmaður, en hann hefur spilað fyrir varalið Real Madrid og Barcelona.
Hann á líka unglingalandsleiki fyrir U18, U19 og U20 ára lið Spánar.

OFFICIAL: #watfordfc is delighted to announce the signing of right-back Kiko Femenía on a four-year deal.
— Watford FC (@WatfordFC) July 1, 2017
Details ➡ https://t.co/Qsp5B2J4fy pic.twitter.com/rUqHOqLeqb