01.07.17 - 13:15
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Marquinhos verður áfram í París (Staðfest)

Marquinhos heldur tryggð við PSG.

Mynd: Getty Images

Marquinhos heldur tryggð við PSG.

Mynd: Getty Images
Brasilíski varnarmaðurinn Marquinhos ætlar ekki að yfirgefa franska stórliðið Paris Saint-Germain. Hann hefur skrifað undir framlengingu á samningi sínum til ársins 2022.
Marquinhos hefur verið orðaður við Manchester United, Barcelona og fleri lið, en hann verður áfram í frönsku höfuðborginni.
Marquinhos hefur verið orðaður við Manchester United, Barcelona og fleri lið, en hann verður áfram í frönsku höfuðborginni.
„Ég hef alltaf sagt að ég sé ánægður að spila fyrir Paris Saint-Germain, og þessi framlenging er frekari sönnun fyrir því,\" sagði þessi hæfileikaríki varnarmaður við heimasíðu félagsins.
„Mér líður mjög vel hjá þessu félagi og með þessum hópi af leikmönnum sem ég er með á hverjum degi.\"
„Ég vonast til að vinna fleiri titla.\"
PSG missti af franska meistaratitlinum á síðasta tímabili. Mónakó vann, en Parísarliðið ætlar að endurheimta titilinn á næstu leiktíð.

Le @PSG_inside est heureux d'annoncer la prolongation du contrat de Marquinhos. Il est donc lié au Club jusqu'en 2022 #Marquinhos2022 pic.twitter.com/ifqkZrDHMY
— PSG Officiel (@PSG_inside) July 1, 2017