Fotbolti.net
01.07.17 - 19:19
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson

Zenit kaupir miðjumann Roma (Staðfest)

Leandro Paredes í leik með Roma.

Leandro Paredes í leik með Roma.

Canon

Mynd: Getty Images

Rússneska félagið Zenit hefur gengið frá kaupum á argentíska miðjumanninum Leandro Paredes.
Paredes kemur til Zenit frá Roma á Ítalíu, talið er að kaupveriðið sé um 22 milljónir evra en að kaupaverðið gæti hækkað upp í 27 milljónir evra ef leikmaðurinn stendur sig vel.

Hann skrifaði undir fjögurra ára samning við Zenit.

Leandro Paredes kveður nú Roma eftir þriggja ára veru þar, hann kom til Roma frá Boca Juniors í Argentínu.

Hann skoraði þrjú mörk og lagði upp eitt í þeim 27 leikjum sem hann kom við sögu í hjá Roma á nýliðnu tímabili.

It\'s official - Leandro Paredes is a Zenit player! The Argentinian international comes to St. Petersburg on a 4-year deal #Welcome #Transfer pic.twitter.com/Fwmi013Z7Q

-- FC Zenit in English (@fczenit_en) July 1, 2017


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.