Fotbolti.net
01.07.17 - 10:15
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Zidane selur son sinn frá Real Madrid (Staðfest)

Feðgar ræða málin.

Feðgar ræða málin.

Canon

Mynd: Getty Images

Zinedine Zidane, stjóri Real Madrid, hefur leyft syni sínum, Enzo, að fara frá Madrídarliðinu og ganga í raðir Alaves.

Hinn 22 ára gamli Enzo hefur skrifað undir þriggja ára samning við Alaves, sem endaði í níunda sæti spænsku úrvalsdeildarinnar, La Liga, á síðasta leiktímabili.
Enzo kemur upp úr akademíunni hjá Real Madrid, en hann lék einn leik með aðalliði Madrídinga. Hann kom á síðasta tímabili, gegn Cultural Leonesa í bikarnum, en Enzo skoraði í þeim leik.

Hann spilaði 78 leiki fyrir varalið Real Madrid, Castilla, og skoraði í þeim sjö mörk og lagði upp 15 til viðbótar.

„Deportivo Alaves býður Enzo Zidane velkominn og óskar honum góðs gengis á næsta tímabili,\" sagði í yfirlýsingu hjá Alaves.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.