Fotbolti.net
01.07.18 - 23:17
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Atli Eðvalds í 4. deild - Tekur við Hamri (Staðfest)

Atli Eðvaldsson.

Atli Eðvaldsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stór tíðind voru að berast úr 4. deildinni því Atli Eðvaldsson, fyrrum landsliðsþjálfari, er tekinn við Hamri í Hveragerði. Hann mun stýra liðinu út leiktíðina.

<a href=\"http://www.fotbolti.net/fullStory.php?id=256796\" target=\"_blank\">Dusan Ivkovic hætti óvænt á dögunum</a> og hófst leit strax að nýjum þjálfara.
Þeir voru ekki lengi að láta til sín taka og hefur Atli Eðvaldsson verið ráðinn til starfa.

Atli stýrði íslenska landsliðinu 1999-2003 en sem leikmaður lék hann 70 A-landsleiki.

Sem þjálfari gerði hann KR að Íslandsmeisturum 1999 en einnig hefur hann þjálfað Fylki, Þrótt, Val, Reyni Sandgerði og Aftureldingu. Hann var síðast þjálfari Kristianstad í Svíþjóð.

Hann mun nú þjálfa í 4. deildinni. Hamar er sem stendur í efsta sæti A-riðils mð 14 stig úr sex leikjum. Næsti leikur liðsins er við Björninn komandi þriðjudag.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.