Fotbolti.net
01.07.18 - 10:09
Ívan Guðjón Baldursson

David Brooks til Bournemouth (Staðfest)

David Brooks til Bournemouth (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Fyrstu sumarkaup Bournemouth hafa verið staðfest. Miðjumaðurinn efnilegi David Brooks er genginn til liðs við félagið.
Brooks er 20 ára miðjumaður sem gerði góða hluti í Championship deildinni með Sheffield United á nýliðnu tímabili.

Brooks er búinn að skrifa undir fjögurra ára samning við Bournemouth og segist hlakka mikið til að starfa með Eddie Howe.

„Hann hefur mikinn metnað og leggur mikið traust á unga leikmenn. Hann hjálpar ungum leikmönnum að þroskast og er hann helsta ástæðan fyrir því að mig langar til Bournemouth,\" sagði Brooks um félagaskiptin.

Brooks á 3 A-landsleiki að baki fyrir Wales. Hann valdi velska landsliðið framyfir það enska og á fimm U20 leiki að baki fyrir England.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.