Rúnar Kristins: Ég skil ekki hvernig hann varði þetta!
Auglýsing

Rúnar laut í lægra haldi á heimavelli í kvöld

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

KR fékk Víkinga í heimsókn á Alvogen-völlinn í kvöld og laut í lægra haldi 0-1 í leik sem þeir stjórnuðu en gátu ekki skorað mark. Rúnar Kristinsson, þjálfari KR, var mjög ánægður með spilamennsku síns liðs og sagði markvörð Víkinga hafa verið stórkostlegan og bjargað því að þeir næðu að skora mark í kvöld.
„Við skorum mörg í Keflavík um daginn og erum kannski að taka eitthvað af kvótanum en við sköpum allavega nóg. Markvörður þeirra varði meistaralega frá Andre í fyrri hálfleik og ég skil ekki hvernig hann fór að því að verja.\"
Rúnar sagði einbeitingaleysi í byrjun seinni hálfleiks hafa kostað þá markið sem þeir fengu á sig en sagði að KR hefði alltaf átt að skora mark í kvöld.
„Við vorum betra liðið i allan dag og Víkingar skora eftir klafs í upphafi seinni hálfleiks þegar við erum kannski hálf sofandi en við eigum alltaf að skora mark í þessum leik.\"
KR hefur aðeins unnið 3 leiki í fyrstu 10 umferðunum og Rúnar segir það klárlega vera undir væntingum en segir spilamennsku liðsins hafa verið góða í mörgum leikjum þó úrslitin endurspegli það ekki.
„Mér finnst við vera búinn að spila ágætlega í mörgum leikjum og áttum líklega meira skilið í einhverjum þeirra en við þurfum að skora fleiri mörk en þeir sem horfðu á leikinn sáu að það var bara eitt lið á vellinum\"
KR er með elsta liðið í deildinni og marga reynslumikla leikmenn sem hafa spilað saman í einhvern tíma og í grunninn er liðið sama og í fyrra. Rúnar segir einfaldlega að aldur vinnur ekki leiki en segist vera ánægður með hóp sinn.
„Það skiptir engu máli hvað þú ert gamall og reynslan ein vinnur ekki leiki. Ég kvarta ekki yfir leikmannahópnum ég er ánægður með hann. Þó þetta sé sami leikmannahópur og í fyrra þá var ég ekki hér í fyrra.\"