Fotbolti.net
01.08.16 - 20:30
Ívan Guðjón Baldursson

Alex Song til Rubin Kazan (Staðfest)

Alex Song til Rubin Kazan (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Alex Song er genginn til liðs við Rubin Kazan í rússnesku deildinni eftir fjögur ár á launaskrá hjá Barcelona.

Song, sem er 28 ára gamall miðjumaður, fer frítt til Rússlands þar sem gífurleg reynsla hans getur komið að góðum notum.
Song gerði garðinn frægan sem leikmaður Arsenal og var ein af helstu stjörnum liðsins þegar Barcelona keypti hann á 15 milljónir punda árið 2012.

Song spilaði 39 deildarleiki fyrir Barcelona og var svo lánaður út til West Ham tvö tímabil í röð.

Miðjumaðurinn á 49 landsleiki fyrir Kamerún að baki en mun líklegast ekki spila annan leik eftir að hann lagði landsliðsskóna á hilluna í janúar 2015.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.