Fotbolti.net
01.08.16 - 11:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Alexander Helgi í Víking Ó. (Staðfest)

Alexander Helgi í Víking Ó. (Staðfest)
Canon

Mynd: Blikar.is

Miðjumaðurinn efnilegi Alexander Helgi Sigurðsson hefur verið lánaður úr Breiðabliki í Víking Ólafsvík. Frá þessu greina <a href=\"http://www.blikar.is/frettir/alexander_helgi_sigurdsson_lanadur_i_viking_olafsvik/\" target=\"_blank\">Blikar.is</a>
Alexander er tvítugur að aldri, en hann kom aftur til Blika í vor eftir að hafa dvalið í herbúðum hollenska úrvalsdeildarliðsins AZ Alkmaar í tvö ár.

Alexander hefur aðeins komið við sögu í tveimur leikjum á þessu tímabili, en hann hefur verið að glíma við meiðsli. Hann hefur núna náð sér og mun spila með Víkingi Ó. seinni hluta tímabilsins.

„Alexander Helgi á að baki 10 leiki fyrir meistaraflokk Breiðabliks og 18 leiki fyrir yngri landslið Íslands. Það er von forráðamanna knattspyrnudeildar að leikmaðurinn fái góða reynslu í Ólafsvík enda höfum við Blikar góða reynslu af leikmönnum sem hafa spilað með Ólafsvíkingum. Þar má nefna Damir Muminovic, Ellert Hreinsson og nú síðast Gísla Eyjólfsson,\" segir á Blikar.is

„Blikar.is sendir Alexander Helga baráttukveðjur og óskar honum alls hins besta á nýjum slóðum. En við hlökkum líka til að fá hann sterkan til baka í haust!\"

Heimild: Blikar.is

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.