01.08.16 - 11:18
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ingólfur Sigurðsson í KH (Staðfest)

Mynd: Facebook-síða KH

Mynd: Facebook-síða KH
Ingólfur Sigurðsson er búinn að semja við KH. Ingólfur kemur til liðsins frá Fram, en hann komst að samkomulagi um starfslok við Safamýrarliðið í síðustu viku.
Ingólfur lék sjö leiki með Fram í Inkasso-deildinni í sumar, en um miðjan síðasta mánuð var hann boðaður á fund þar sem honum tjáð að félagið vildi losa sig við hann því hann hefði slæm áhrif á hópinn.
„Ég heyrði ekkert frá þjálfaranum fyrr en ég hringdi í hann, þar segir hann að meirihluti leikmanna hafi komið og kvartað undan mér og meintri neikvæðni. Það rímar hvorki við sannleikann eða það sem leikmenn segja,\" sagði Ingólfur um málið þá.
En aftur að félagsskiptum Ingólfs til KH. Ingólfur á langan feril að baki þrátt fyrir að vera aðeins 23 ára gamall. Ingólfur hefur leikið sem atvinnumaður hjá Heerenveen í Hollandi og Lyngby BK í Danmörku. Þá lék hann með KR og Val í efstu deild og Þrótti R., KV, Víkingi Ólafsvík og síðast Fram í 1. deild. Ingólfur var lykilmaður í liði Víkings sem vann 1. deildina með miklum yfirburðum í fyrra. Alls hefur Ingólfur spilað 76 leiki og skorað 11 mörk hér á landi.
Ingólfur er KH-mönnum ekki ókunnur en hann þjálfaði liðið, ásamt Steinari Inga Þorsteinssyni, tímabilin 2014 og 2015. Hann hefur þá verið liðinu til handar í sumar og aðstoðað við þjálfun.
KH leikur D-riðli 4. deildar, en þeir eru enn taplausir þegar níu leikjum er lokið.