01.08.16 - 14:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Jakub Blaszczykowski til Wolfsburg (Staðfest)

Blaszczykowski er búinn að finna sér nýtt lið

Mynd: Getty Images

Wolfsburg hefur staðfest kaup á Jakub Blaszczykowski, en hann kemur til liðsins frá Borussia Dortmund.
Kaupverðið er ekki gefið upp, en hann skrifaði undir þriggja ára samning við Wolfsburg.

Hinn þrítugi Blaszczykowski var í láni hjá Fiorentina á Ítalíu á síðasta leiktímabili og eftir komu Andre Schurrle til Dortmund var það ljóst að hann myndi fara frá félaginu.
Jakub er leikmaður sem getur reynst hvaða liði sem er vel - ekki bara vegna fótboltahæfileika sinna, heldur vegna þess að hann gefur sig alltaf 100% í öll verkefni,\" sagði Klaus Allofs, stjóri íþróttamála, eftir að vistaskiptin gengu í gegn.
Blaszczykowski er sjöundi leikmaðurinn sem Wolfsburg kaupir þetta sumarið, en áður höfðu Yannick Gerhardt, Jeffrey Bruma, Josip Brekalo, Josuha Guilavogui, Daniel Didavi og Borja Mayoral samið við félagið.