Fotbolti.net
01.08.16 - 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Jeremy Menez í Bordeaux (Staðfest)

Jeremy Menez er kominn heim til Frakklands

Jeremy Menez er kominn heim til Frakklands

Canon

Mynd: Getty Images

Franska félagið Bordeaux hefur staðfest það að samkomulag hefur náðst við AC Milan um kaup á sóknarmanninum Jeremy Menez.

Bordeaux greindi frá þessu á heimasíðu sinni, en hinn 29 ára gamli Menez verður kynntur fyrir fjölmiðlum í Frakklandi seinna í dag.
Menez mun snúa aftur til Frakklands eftir tvö ár á Ítalíu með AC Milan. Hann er uppalinn hjá Sochaux, en síðast spilaði hann með stórliðinu Paris Saint-Germain.

Hann er fjórði leikmaðurinn sem Bordeaux kaupir þetta sumarið, en áður höfðu þeir Jeremy Toulalan, François Kamano og Paul Bernardoni.

Bordeaux endaði í 11. sæti frönsku úrvalsdeildarinnar á síðasta tímabili og þeir ætla sér greinilega stærri hluti á komandi tímabili.

Heimild: Squawka

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.