01.08.16 - 18:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Martin Montoya til Valencia (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Bakvörðurinn Martin Montoya er búinn að skrifa undir fjögurra ára samning við Valencia.
Montoya kom upp úr hinni frægu La Masia akademíu hjá Barcelona, en hann náði aldrei að vinna sér almennilega sæti í byrjunarliði félagsins.
Montoya kom upp úr hinni frægu La Masia akademíu hjá Barcelona, en hann náði aldrei að vinna sér almennilega sæti í byrjunarliði félagsins.
Hann komst að samkomulagi við Barcelona um riftun á samningi sínum og nú er hann búinn að skrifa undir hjá Valencia.
Montoya lék sinn fyrsta aðalliðsleik með Barcelona árið 2011, en síðan þá hefur hann komið við sögu í 66 leikjum. Hann hefur undanfarið verið í burtu á láni, fyrst hjá Inter Milan og svo hjá Real Betis.

OFFICIAL STATEMENT | @2MONTOYA, new #VCF player, #WelcomeMontoya➡https://t.co/nGzTIGZZoj pic.twitter.com/kqN3tyf2yi
— Valencia CF English (@valenciacf_en) August 1, 2016