Fotbolti.net
01.08.16 - 19:36
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalska deildin

Milik kominn til Napoli (Staðfest)

Milik kominn til Napoli (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Pólski sóknarmaðurinn Arkadiusz Milik er genginn til liðs við Napoli þar sem hann á að hjálpa til við að fylla í það stóra skarð sem Gonzalo Higuain skilur eftir sig.

Aurelio De Laurentiis, forseti Napoli, staðfesti félagaskiptin á Twitter en greindi ekki frá kaupverðinu, sem er talið nema um 35 milljónum evra.
Milik er mikill markaskorari og gerði hann 21 mark í 31 deildarleik fyrir Ajax á síðasta tímabili.

Milik hefur gert 11 mörk í 31 landsleik með Póllandi og skoraði sigurmark gegn Norður-Írlandi á EM í sumar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.