Fotbolti.net
01.08.16 - 21:00
Ívan Guðjón Baldursson

Steven Taylor í MLS deildina (Staðfest)

Steven Taylor í MLS deildina (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Steven Taylor er búinn að skrifa undir samning við Portland Timbers í norður-amerísku MLS deildinni.

Taylor er þrítugur varnarmaður sem hefur verið leikmaður Newcastle allan ferilinn.
Taylor á 215 deildarleiki að baki á 13 árum hjá félaginu og á hann tæplega 60 landsleiki að baki fyrir yngri landslið og B-lið Englands.

Hjá Portland gengur Taylor til liðs við tvo samlanda sína, Jack Barmby sem er þar á láni frá Leicester City og Liam Ridgewell, sem hefur áður leikið fyrir Aston Villa, Birmingham og West Brom.

Portland er í sjöunda sæti af tíu í vesturhluta MLS deildarinnar, þar sem FC Dallas er á toppnum, með Colorado Rapids og Los Angeles Galaxy á hælunum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.