Fotbolti.net
01.08.17 - 09:00
Magnús Már Einarsson

Baldvin Ólafs og Halldór Hermann í Magna (Staðfest)

Halldór Hermann Jónsson.

Halldór Hermann Jónsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Magni Grenivík fékk þá Baldvin Ólafsson og Halldór Hermann Jónsson í sínar raðir áður en félagaskiptaglugginn lokaði á miðnætti.
Halldór Hermann er 32 ára miðjumaður en hann hefur ekkert komið við sögu með KA í sumar vegna meiðsla. Í fyrra spilaði Halldór sextán leiki þegar KA vann Inkasso-deildina.

Halldór hefur verið undanfarin tvö ár hjá KA en hann lék áður með Val, Fram og Fjarðabyggð.

Baldvin er 32 ára varnarmaður en hann hefur komið við sögu í fjórum leikjum í Pepsi-deildinni í sumar. Í fyrra spilaði hann fimmtán leiki þegar KA vann Inkasso-deildina.

Baldvin lék með Magna árin 2008 og 2009 en hann hefur samtals leikið 125 leiki í deild og bikar á ferli sínum með KA, Þór og Magna.

Magni fékk einnig Björn Andra Ingólfsson frá KA og Þorgeir Ingvarsson frá Fjölni í gær. Þeir eru báðir á 2. flokksaldri en koma til með að auka breiddina í meistaraflokkshópi Magna.

Magni er í 2. sæti í 2. deildinni, með jafnmörg stig og topplið Njarðvíkur. Næsti leikur Magna er gegn botnliði Sindra á morgun.
Baldvin Ólafsson.

Baldvin Ólafsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.