01.08.17 - 08:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Dalvík/Reynir fékk til sín fjóra leikmenn (Staðfest)

Kristinn Þór í leik með Þór.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Það var nóg að gera á skrifstofu Dalvíkur/Reynis á lokadegi félagsskiptagluggans í gær.
Þeir fengu til sín tvo leikmenn, en fyrr í glugganum hafði félagið fengið til sín tvö aðra leikmenn.

Í gær endurheimti félagið Kristin Þór Björnsson frá Þór, en hann hafði leikið með Þór frá 2012, að undanskildu einu tímabili, tímabilinu 2013 þegar hann spilaði á Dalvík.
Þá ákvað Bessi Víðisson að taka skóna fram að hillunni og klára tímabilið með Dalvík/Reyni. Bessi er uppalinn á Dalvík, en hann hefur einnig spilað með Þór, KA og Keflavík.
Sumarið 2012 skoraði hann 18 mörk í 19 leikjum i 2. deild með Dalvík/Reyni. Hvað gerir hann núna?
Dalvík/Reynir fékk einnig Jón Björgvin Kristjánsson á láni frá Þór og Yazidu Moussa, sem spilaði siðast á Ítalíu.
Dalvík/Reynir er í áttunda sæti 3. deildar karla.

Gleðitíðindi...Kiddi Björns kominn heim! #deadlineday #Fotboltinet pic.twitter.com/qPOCz63j20
— Dalvík/Reynir (@dalvik_reynir) July 31, 2017