Fotbolti.net
01.08.17 - 14:11
Magnús Már Einarsson

Jón Aðalsteinn tekur við Reyni Sandgerði (Staðfest)

Jón Aðalsteinn Kristjánsson á hliðarlínunni hjá Fylki fyrr í sumar.

Jón Aðalsteinn Kristjánsson á hliðarlínunni hjá Fylki fyrr í sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson

Jón Aðalsteinn Kristjánsson hefur verið ráðinn þjálfari Reynis Sandgerði í 3. deild.

Hann tekur við af Hannesi Jóni Jónssyni sem komast að samkomulagi um starsflok við félagið.
„Knattspyrnudeild Reynis og Hannes Jón Jónsson, þjálfari meistaraflokks karla, hafa komist að samkomulagi um starfslok Hannesar. KSD. Reynis vill þakka Hannesi fyrir störf sín fyrir félagið.
Jón Aðalsteinn Kristjánsson mun stýra liðinu út tímabilið,\"
segir á heimasíðu Reynis.

Jón Aðalsteinn stýrði Fylki í Pepsi-deild kvenna fyrri hluta sumars en hann hætti þar í lok júní.

Staða Reynismanna er erfið í 3. deildinni eftir 3-0 tap gegn Dalvík/Reyni um síðustu helgi.

Reynismenn eru með fimm stig á botni deildarinnar, átta stigum frá öruggu sæti þegar sex umferðir eru eftir.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.