01.08.17 - 11:05
Elvar Geir Magnússon
Króatískur kantmaður í FH (Staðfest)

Matija Dvornekovic er til hægri á myndinni í leik með Volga Nizhny Novgorod.

Mynd: Getty Images

Króatíski kantmaðurinn Matija Dvornekovic hefur samið við FH-inga og er kominn með leikheimild með liðinu.
Dvornekovic er 28 ára hægri kantmaður sem einnig getur leyst stöðu fremsta leikmanns og vinstri kantmanns.
Hann kemur á frjálsri sölu eftir að hafa orðið albanskur meistari með Kukesi á síðasta tímabili. Félagið ákvað að losa sig við hann þar sem launatölur hans voru of háar.
Hann skoraði fimm mörk í 50 leikjum fyrir Kukesi.
Dvornekovic hefur einnig leikið í heimalandi sínu og í Rússlandi. Árið 2008 lék hann tvo U19 landsleiki fyrir Króatíu.
Hann má ekki spila með FH gegn Maribor í Meistaradeildinni á miðvikudag þar sem hann er ekki skráður í Evrópuhóp FH. Hann gæti hins vegar spilað sinn fyrsta leik gegn KA í Pepsi-deildinni á laugardag.
Í gær fékk FH til sín franskan varnarmann og Íslandsmeistararnir nældu sér því í tvo leikmenn í glugganum. Liðið situr í fjórða sæti Pepsi-deildarinnar, er tíu stigum á eftir toppliði Vals en á leik til góða.

Fyrsti austur evrópski leikmaðurinn að spila með FH í rúm 20 ár, Matija Dvornekovic 28 ára sóknarmaður frá Króatíu kominn. #pepsi365
— Höddi Magg (@HoddiMagnusson) August 1, 2017