Fotbolti.net
01.08.17 - 19:00
Þórarinn Jónas Ásgeirsson

Manchester City lánar þrjá til Girona (Staðfest)

Douglas Luiz er nýkominn til City en hefur nú verið lánaður

Douglas Luiz er nýkominn til City en hefur nú verið lánaður

Canon

Mynd: Manchester City

Manchester City hefur lánað þrjá leikmenn til viðbótar til spænska úrvalsdeildarliðsins, Girona. Fjórir leikmenn félagsins hafa því verið lánaðir til nýliðanna í La Liga en í gær var Pablo Maffeo lánaður til Girona og nú bætast við þeir Aleix Garcia, Douglas Luiz og Marlos Moreno.
Douglas Luiz kom til City fyrir viku síðan fyrir 10 milljónir punda frá Vasco da Gama en hefur nú verið lánaður til Spánar. Luiz, sem er nítján ára gamall miðjumaður, er talinn gríðarlega efnilegur og hafa City því ákveðið að leyfa honum að venjast evrópska boltanum með því að lána hann til Girona.

Miðjumaðurinn Aleix Garcia spilaði fjóra leiki fyrir City á síðustu leiktíð en fær núna tækifæri á því að spila reglulega á komandi tímabili með þessum skiptum yfir til Spánar.

Marlos Moreno kom til City síðasta sumar en var á láni hjá Deportivo La Coruna á síðustu leiktíð. Moreno spilar annað hvort sem kantmaður eða framherji en hann spilaði 19 leiki fyrir Deportivo en tókst ekki að koma sér á blað.

Samstarf City og Girona er ekki einungis varðandi leikmenn en Girona liðið æfði á æfingasvæði City núna á undirbúningstímabilinu. Þá munu liðin einnig spila æfingaleik þann 15.ágúst í Katalóníu en það er einmitt þremur dögum eftir fyrsta leik City í ensku úrvalsdeildinni.
Aleix Garcia fær tækifæri á Spáni í vetur

Aleix Garcia fær tækifæri á Spáni í vetur

Canon

Mynd: Getty Images

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.