Fotbolti.net
01.08.17 - 11:51
Magnús Már Einarsson

Selfoss fær skoskan framherja (Staðfest)

Selfoss fær skoskan framherja (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Selfoss hefur fengið skoska framherjann Leighton McIntosh í sínar raðir en hann leikur með liðinu út tímabilið.

Leighton á að fylla skarð Alfi Conteh Lacalle sem Selfyssingar sendu heim á dögunum en hann stóðst ekki væntingar hjá liðinu.

Hinn 24 ára gamli Leighton hefur verið duglegur að skora með Peterhead í skosku C-deildinni undanfarin tvö ár.
„Hann klárar timabilið hjá okkur en er hér í leiðinni á reynslu fyrir næsta tímabil,\" sagði Gunnar Borgþórsson, þjálfari Selfyssinga, við Fótbolta.net í dag.

Selfoss siglir lygnan sjó í 6. sæti Inkasso-deildarinnar en næsti leikur liðsins er gegn Keflavík á morgun.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.