01.08.18 - 10:16
Arnar Daði Arnarsson
Aldís Kara í Breiðablik (Staðfest)

Aldís Kara í leik með FH sumarið 2016.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Aldís Kara í leik með FH sumarið 2016.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sóknarmaðurinn, Aldís Kara Lúðvíksdóttir hefur gengið í raðir Breiðabliks en hún hefur ekkert leikið frá því hún spilaði 17 leiki með FH sumarið 2016.
Hún þekkir vel til hjá Breiðablik en þar lék hún þrjú tímabil frá árinu 2013 til 2015 og skoraði þar 17 mörk í deild og bikar.

Breiðablik er á toppi Pepsi-deildar kvenna þegar sex umferðir eru eftir með stigi meira en Þór/KA.
Blikarnir fengu einnig til sín Hildi Antonsdóttir til baka af láni frá HK/Víkingi á dögunum en liðið missti nokkra leikmenn erlendis í nám þar á meðal Andreu Rán Hauksdóttir og Selmu Sól Magnúsdóttur.
Næsti leikur Breiðabliks er í Vestmannaeyjum föstudaginn 10. ágúst.