01.08.18 - 10:11
Arnar Daði Arnarsson
Aron Freyr í Hauka (Staðfest)

Aron Freyr í leik með Keflavík í sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Aron Freyr í leik með Keflavík í sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Kantmaðurinn og bakvörðurinn Aron Freyr Róbertsson hefur gengið til liðs við Hauka í Inkasso-deildinni og er löglegur með liðinu fyrir leikinn í kvöld gegn ÍA á heimavelli.
Aron gengur í raðir Hauka frá Keflavík en hann lék 12 leiki með Keflvíkingum í Pepsi-deildinni í sumar.
Aron gengur í raðir Hauka frá Keflavík en hann lék 12 leiki með Keflvíkingum í Pepsi-deildinni í sumar.
Þessi 22ja ára leikmaður hefur á ferli sínum leikið með Víði, Njarðvík og Grindavík en hann lék 18 leiki með Grindavík í Pepsi-deildinni í fyrra áður en hann gekk í raðir Keflvíkinga fyrir tímabilið.
Haukar eru í mikilli fallbaráttu í Inkasso-deildinni með 13 stig, tveimur stigum meira en Selfoss sem eru í 11. sæti deildarinnar með 11 stig.
Haukar taka á móti ÍA klukkan 18:30 í kvöld.
Haukar eru í mikilli fallbaráttu í Inkasso-deildinni með 13 stig, tveimur stigum meira en Selfoss sem eru í 11. sæti deildarinnar með 11 stig.
Haukar taka á móti ÍA klukkan 18:30 í kvöld.
